19.09.24 - 09:18
Elvar Geir Magnússon
ÍA vann Breiðablik í bikarúrslitaleik 2. flokks

Jón Breki Guðmundsson kom til ÍA frá KFA í sumar.

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

ÍA varð í gær bikarmeistari í 2. flokki karla þegar liðið vann 3-2 sigur gegn Breiðabliki í úrslitaleik á Kópavogsvelli.
Jón Breki Guðmundsson, Börkur Bernharð Sigmundsson og Axel Freyr Ívarsson skorðu mörk Skagamanna en Atli Þór Gunnarsson gerði bæði mörk Breiðabliks.
ÍA, sem teflir fram liði með Kára og Skallagrími í þessum aldursflokki, var 1-0 yfir í hálfleik. Atli jafnaði í byrjun seinni hálfleiks en Skagamenn komust í 3-1 áður en Blikar minnkuðu muninn á 76. mínútu.