Á morgun mætast PSG og Manchester United í Meistaradeildinni en Ander Herrera, fyrrum miðjumaður United, segist sjá framþróun hjá sínu fyrrum félagi.
„Það er ekki auðvelt að bera saman við tímann sem Sir Alex Ferguson var þarna. Það er ekki sanngjarnt fyrir leikmenn eða stjórana sem hafa komið á eftir honum. Hann var sigursælasti stjóri sögunnar," segir Herrera.

„Manchester United er stærsta félagið í Bretlandi en við þurfum að sýna sanngirni. Félagið hefur ekki gleymt fortíðinni því minningarnar eru frábærar en nú er félagið í nýrri stöðu. Þeir eru í framþróun. Þeir hafa keypt réttu leikmennina og eru á réttri leið."
Herrera, sem nú spilar fyrir PSG, sat fyrir svörum á fréttamannafundi og þar hrósaði hann Paul Pogba.
„Paul hefur allt, það er enginn eins og hann. Einn gegnum einum, teig í teig, hann er með allt til að vinna Ballon D'Or gullknöttinn ef félagið nær að berjast um stærstu titlana," segir Herrera.
Athugasemdir