Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 19. október 2021 20:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Griezmann skoraði tvö og fékk svo rautt
Griezmann var vísað af velli.
Griezmann var vísað af velli.
Mynd: Getty Images
Franski landsliðsmaðurinn Antoine Griezmann fékk að líta rauða spjaldið í leik Atletico Madrid og Liverpool sem er núna í gangi í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Staðan er 2-2. Griezmann jafnaði metin fyrir Atletico undir lok fyrri hálfleiksins, hann skoraði tvennu.

Snemma í seinni hálfleiknum - á 52. mínútu - var honum svo vísað af velli. Hann fékk beint rautt spjald fyrir að sparka í andlit Roberto Firmino, sóknarmanns Liverpool.

Þetta var algjört óviljaverk en dómarinn ákvað að vísa honum af velli fyrir brotið.

Hægt er að sjá myndband af brotinu með því að smella hérna.

Hvað finnst þér; er þetta eldrautt spjald?
Athugasemdir
banner
banner