Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 19. nóvember 2019 20:13
Brynjar Ingi Erluson
Telja Mourinho líklegastan til að taka við Tottenham
Jose Mourinho að taka við Tottenham?
Jose Mourinho að taka við Tottenham?
Mynd: Getty Images
Veðbankar á Englandi telja Jose Mourinho, fyrrum knattspyrnustjóra Chelsea og Manchester United, líklegastan til að taka við Tottenham Hotspur.

Mauricio Pochettino var rekinn frá Tottenham í kvöld eftir slakan árangur í byrjun tímabilsins en liðið situr í 14. sæti deildarinnar þegar tólf leikir eru búnir af mótinu.

Samkvæmt ensku veðbönkunum er Mourinho líklegastur til að taka við keflinu en hann hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Manchester United í desember.

Hann hefur starfað sem sparkspekingur hjá Sky Sports og bein Sports en vill ólmur komast aftur að í þjálfun.

Stuðullinn er lægstur á að Mourinho taki að sér starfið en þá eru þeir Carlo Ancelotti, Rafael Benitez, Massimo Allegri, Julian Nagelsmann, Brendan Rodgers og Eddie Howe einnig sagðir í myndinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner