Fotbolti.net
19.11.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sneijder brjálaður eftir leik milli goðsagna

Sneijder brjálaður eftir leik milli goðsagna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hollendingnum Wesley Snijder var ekki skemmt þegar goðsagnir Ajax mættu goðsögnum Barcelona um síðustu helgi.

Það er oftar en ekki létt stemning í kringum svona leiki. Það er oftar en ekki liðin mörg ár síðan flestir lögðu skóna á hilluna og eru langt frá sínu besta formi.
Sneijder tók þessum leik hins vegar gríðarlega alvarlega og var ekki sáttur með spiltímann og hversu slakir samherjar hans voru.

„Ég var búinn að hlakka til og æfði fyrir þetta. Svo fær maður bara að spila hálftíma með leikmönnum sem skortir dýpt. Það gerir þetta minna skemmtilegt," sagði Sneijder.

„Ég var aðallega þarna fyrir gott málefni og hitta gamla kollega en ég vil líka vinna. Og að spila því það er það sem ég æfði fyrir. Það var tekið frá mér. Ég var brjálaður. Allir þessir leikmenn Barcelona í formi svo maður þurfti að hlaupa til baka líka. Ég fékk nóg."

Leiknum lauk með 7-4 sigri Barcelona. Javier Saviola og Nolito skoruðu tvö mörk hvor fyrir Barcelona og Aleix Vidal, Roger Garcia og Cristian Tello eitt mark hver. Klaas-Jan Huntelaar skoraði tvennu fyrir Ajax og Patrick Kluivert og Siem de Jong sitt markið hvor.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.