Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. janúar 2020 17:30
Magnús Már Einarsson
Aston Villa selur Kodija til Katar (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur selt framherjann Jonathan Kodija til Al-Gharafa í Katar.

Kodija skoraði níu mörk þegar Aston Villa fór upp úr Championship deildinni á síðasta tímabili en hann hefur einungis leikið sex leiki í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Hinn þrítugi Kodija var að renna út að samningi eftir tímabilið og Aston Villa ákvað að selja hann núna.

Aston VIlla er að reyna að kaupa framherjann Mbwana Samatta frá Genk en félagið vill bæta við manni í fremstu víglínu eftir að ljóst varð að Wesley spilar ekki meira með á tímabilinu vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner