Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. janúar 2020 09:49
Magnús Már Einarsson
Rekinn út af fyrir að verja tvö víti - Varnarmaður varði það þriðja
Mynd: Raggi Óla
Það voru senur á lokamínútunum í leik Usakspor og Velimesespor í tyrknesku C-deildinni um helgina.

Ersin Aydin, markvörður Usakspor, varði vítaspyrnu á 90. mínútu en hann fór af línunni áður en spyrnan var tekin.

Dómarinn sýndi Ersin gula spjaldið og lét endurtaka spyrnuna. Ersin varði aftur en fór aftur af línunni. Dómarinn sýndi honum því annað gult spjald og þar með rautt.

Þar sem skiptingarnar voru búnar hjá Usakspor þá fór hægri bakvörðurinn Levent Aktug í markið og hann varði þriðju vítaspyrnuna!

Usakspor vann leikinn 2-0 en sjón er sögu ríkari!


Athugasemdir
banner