PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 15:48
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal gæti endurheimt tvo mikilvæga leikmenn
Mynd: EPA
Óvíst er hvort Kai Havertz og Martin Ödegaard muni ná grannaslagnum er Arsenal mætir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni um helgina, en Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segist bjartsýnn á að þeir verði með, en að það sé ekki 100 prósent klárt.

Engin ný meiðsli eru í hópnum hjá Arsenal frá 2-2 jafnteflinu gegn Úlfunum.

Arsenal ætti því að vera með nokkuð sterkt lið gegn vel lemstruðu liði Tottenham, en grannarnir eru með tíu meidda leikmenn.

Einnig er möguleiki á því að Kai Havertz og Martin Ödegaard verði klárir en Arteta segist bjartsýnn. Havertz hefur misst af síðustu tveimur deildarleikjum en Ödegaard misst af leikjunum gegn Úlfunum og Wigan.

„Við verðum að bíða til morguns, en það eru mjög góðar líkur á að þeir verði með,“ sagði Arteta.

Arsenal er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni með fimm stiga forystu á Manchester City sem á þó leik til góða. Tottenham er í 16. sæti, fimm stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner