Fotbolti.net
20.02.26 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson

Laporta: Reiðubúnir til að kaupa stjörnuleikmann í sumar

Laporta: Reiðubúnir til að kaupa stjörnuleikmann í sumar
Canon

Mynd: EPA

Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Barcelona ætlar að kaupa sér nýjan framherja í sumar enda er Robert Lewandowski orðinn 37 ára gamall og að renna út á samningi.
Pólski reynsluboltinn er kominn með 13 mörk og 3 stoðsendingar í 30 leikjum á tímabilinu og hefur verið nokkuð langt frá sínu besta.

Julián Alvarez er mjög ofarlega á óskalistanum en það verður erfitt að kaupa hann úr röðum Atlético Madrid sem hefur engan áhuga á að selja stjörnuleikmann sinn.

Alvarez er samningsbundinn Atlético í fjögur og hálft ár til viðbótar eftir að félagið borgaði tæpar 100 milljónir evra til að kaupa hann úr röðum Manchester City.

Joan Laporta forseti Barcelona segir að félagið sé reiðubúið til að kaupa stórstjörnu næsta sumar.

„Ef við þurfum að kaupa stjörnuleikmann næsta sumar þá erum við reiðubúnir til þess. Fjárhagurinn er kominn í gott stand og við höfum aldrei áður skilað jafn miklum hagnaði," sagði Laporta á dögunum, en hann er þessa dagana í kosningabaráttu um að halda forsetastólnum hjá Barca.

„Við erum búnir að lækka launakostnaðinn úr 98% af tekjum niður í 54% til þess að virða fjárhagsreglur La Liga. Þess vegna getum við leyft okkur að kaupa inn nýjan stjörnuleikmann í sumar.

„Við ætlum ekki að kaupa stjörnur bara því þær eru stjörnur, menn verða að passa í hópinn. Það gengur ekki upp að safna saman stórum persónuleikum í eitt fótboltalið, við sáum það til dæmis með 'Los Galácticos'."


Spænskir fjölmiðlar segja tvö helstu skotmörk Börsunga vera Alvarez og Alessandro Bastoni, varnarmann Inter og ítalska landsliðsins. Spánarmeistararnir munu hafa um 200 milljónir evra til að kaupa nýja leikmenn samkvæmt fregnunum.

„Ég hef fulla trú á liðinu og starfsmönnum. Ég er viss um að við munum vinna La Liga og berjast til enda í öllum keppnum."

Börsungar hafa tapað síðustu tveimur leikjum í röð í deild og bikar.

Sjáðu mörkin: Atletico pakkaði Barcelona saman
TENGT EFNI

Sjáðu mörkin: Atletico pakkaði Barcelona saman

Laporta: Reiðubúnir til að kaupa stjörnuleikmann í sumar
Canon

Mynd: EPA

Laporta: Reiðubúnir til að kaupa stjörnuleikmann í sumar
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid9+1421
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Villarreal10+112
9Celta9+311
10Deportivo10011
11Osasuna9-811
12Racing Santander10-1111
13Levante9-210
14Elche10-310
15Athletic8-19
16Getafe9-69
17Vallecano9-89
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.