PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 13:20
Brynjar Ingi Erluson
Mun Glasner þrauka út tímabilið? - „Sjáum til hvað framtíðin ber í skauti sér“
Oliver Glasner
Oliver Glasner
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Austurríski stjórinn Oliver Glasner er í heitu sæti hjá Crystal Palace aðeins tæpu ári eftir að hafa gert liðið að bikarmeisturum.

Palace hefur aðeins unnið einn af síðustu fimmtán leikjum í öllum keppnum og farið að halla verulega undan fæti hjá Glasner sem var álitinn sem goðsögn fyrir ekki svo löngu.

Allt hefur farið niður á við sérstaklega eftir að hann gagnrýndi stjórnina fyrir að sýna sér ekki stuðning á markaðnum. Eberechi Eze var seldur til Arsenal síðasta sumar og þá var fyrirliðinn Marc Guehi seldur undir lok vetrargluggans til Manchester City.

Palace var einnig reiðubúið að leyfa Jean-Philippe Mateta að fara til AC Milan, en ítalska félagið tók ekki áhættuna á að ganga frá skiptunum vegna hnévandamáls Frakkans.

Það hefur lítið gengið upp hjá Palace og var kallað eftir höfði Glasner eftir óvænta 1-1 jafntefli gegn Zrinjski Mostar í fyrri umspilsleiknum í Sambandsdeildinni í gær.

Hann var spurður á fréttamannafundi í dag hvort hann væri enn með viljann til þess leiða liðið áfram út tímabilið en það liggur þegar fyrir að hann mun hætta með liðið þegar samningur hans rennur út í sumar.

„Sjáum til. Ég hef alltaf sagt þetta og þetta er ekki fyrsti fréttamannafundurinn þar sem ég gæti bara endurtekið það sem ég er að segja.“

„Eins og ég hef sagt þá reiðir maður sig á leikmennina og þeir munu auðvitað fá allan stuðninginn eins og alltaf. Síðan munum við bara sjá hvað gerist.“

„Sjáum til hvað framtíðin ber í skauti sér. Maður veit aldrei,“
sagði Glasner sem telur sig hafa burði til þess að koma Palace aftur á beinu brautina.

„Þetta er frekar auðvelt í fótbolta. Sem stjóri heldur þú starfi þínu ef úrslitin eru í lagi. Fótbolti snýst um nákvæmlega þetta og síðustu mánuði hafa úrslitin ekki verið góð. Frammistaðan hefur ekki verið stöðug og þannig er það bara.“

„Nei, aldrei. Þess vegna er ég opinn þegar ég ræði þetta því þetta snýst aldrei um Oliver Glasner. Líf Oliver Glasner heldur áfram á einhverjum öðrum stað í sumar eða hvernig sem það er. Líf Crystal Palace heldur áfram, en hver einasti leikmaður, eða flestir leikmenn eru samningsbundnir liðinu á næsta ári og þeir spila vel til að gera vel með Palace.“

„Sambandsdeildin er líklega eina tækifærið til að spila Evrópubolta aftur. Það væri stórkostlegt. Þegar þú nærð einhverjum áfanga einu sinni á 120 árum og átt möguleikann á því að gera það tvö ár í röð yrði ótrúlegt afrek. Ekki fyrir Oliver Glasner heldur fyrir leikmennina.“

„Já, ég held það. Svarið er já,“
sagði Glasner enn fremur.
Athugasemdir
banner
banner