Pierre Emerick Aubameyang er ekki í náðinni hjá Graham Potter stjóra Chelsea en þessi 33 ára gamli framherji virðist vera með hugann við annað.
Hann hefur aðeins komið við sögu í 18 leikjum í deild og Meistaradeild og skorað aðeins þrjú mörk á þessari leiktíð.
Hann kom til Chelsea frá Barcelona í sumar og skrifaði undir tveggja ára samning hann hafði blómstrað á Spáni.
Fabrizio Romano greinir frá því að Aubameyang sé enn í góðu sambandi við Barcelona, bæði leikmenn, stjórn og Xavi. Hann vildi fara til Barcelona í janúar en það var ekki hægt.
Hann var mættur til Barcelona í gær og fagnaði sigri Barcelona gegn Real Madrid með leikmönnum liðsins.
Pierre Emerick Aubameyang, almost out of Chelsea project, was in Barcelona’s dressing room after Real Madrid game ???????????????? #FCB
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 20, 2023
Auba has still excellent relationship with Barça players, board and Xavi.
He wanted to return in January but it was not possible due to FIFA rules. pic.twitter.com/5KjPpbz8gH