Breiðablik 2-0 Keflavík
Mörk Blika: Ágúst Eðvald Hlynsson og Stefán Ingi Sigurðarson.
Breiðablik og Keflavík mættust í æfingaleik á Kópavogsvelli í kvöld.
Breiðablik lauk leik í Lengjubikarnum í síðustu viku en það eru komnar rúmar þrjár vikur síðan Keflavík lék sinn síðasta leik í keppninni.
Þar tapaði Breiðablik gegn ÍBV en Óskar Hrafn Þorvaldsson gerði 11 breytingar á liðinu frá þeim leik.
Blikar unnu 2-0 sigur á Keflavík í kvöld. Ágúst Eðvald Hlynsson kom liðinu í forystu með laglegu marki beint úr aukaspyrnu og Stefán Ingi Sigurðarson skoraði síðara markið með góðu skoti í vítateignum, bæði mörkin í fyrri hálfleik.
Kristinn Steindórsson fór af velli vegna meiðsla eftir um það bil 25 mínútna leik og í hans stað kom Stefán Ingi.
Byrjunarlið Breiðabliks: Brynjar Atli - Andri Rafn - Arnór Sveinn - Oliver Stefánsson - Viktor Elmar - Oliver Sigurjónsson - Ágúst Hlynsson - Alexander Helgi - Dagur Fjelsted - Kiddi Steindórsson - Eyþór Wöhler
Byrjunarlið Keflavíkur: Mathias, Axel Ingi, Magnús Þór, Leikmaður á Reynslu, Gunnlaugur Fannar, Sindri Snær, Frans, Daníel Gylfason, Jóhann Arnarsson, Marley Blair og Sami Kamel.