Ægir, sem spilar í Lengjudeildinni á komandi tímabili, þurfti að bregðast hratt við eftir að KR kallaði markvörðinn Sigurpál Sören Ingólfsson til baka úr láni og hefur það nú staðfest að Ómar Castaldo Einarsson mun mæta til leiks með liðinu rétt fyrir fyrsta deildarleik.
Ómar var kynntur hjá Ægi í vetur, en hann hefur stundað nám í Bandaríkjunum og var planið að hann kæmi til félagsins í byrjun maí.
Ægir hafði þá fengið Sigurpál Sören á láni frá KR, en hann var kallaður til baka í vikunni eftir að Arnar Freyr Ólafsson meiddist í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.
Ægir náði að flýta fyrir heimkomu Ómars og mun hann koma til móts við liðið fyrir fyrsta leikinn í Lengjudeildinni sem er spilaður næsta föstudag.
Ómar er 25 ára gamall og er eins og Sigurpáll uppalinn í KR, en hann var aðalmarkvörður KV í þrjú ár og spilaði einnig fyrir Þór, Reyni Sandgerði og Víking Ólafsvík.


