Fotbolti.net
20.05.21 - 09:15
Elvar Geir Magnússon

Lokadagurinn í enska á sunnudag - Þrjú lið berjast um tvö Meistaradeildarsæti

Liverpool er með betri markatölu en Leicester.

Liverpool er með betri markatölu en Leicester.

Canon

Mynd: EPA

Lokumferð ensku úrvalsdeildarinnar verður á sunnudaginn en Chelsea, Liverpool og Leicester berjast þar um tvö laus Meistaradeildarsæti. Það er sú barátta sem flestra augu beinast að á lokadegi deildarinnar.

Meistararnir í Manchester City hafa þegar tryggt sér Meistaradeildarsæti og einnig grannarnir í Manchester United sem eru öruggir með annað sætið. Fjögur efstu sætin gefa Meistaradeildarsæti.

Aðeins eitt stig skilur að Chelsea sem er í þriðja sæti og Leicester sem er í fimmta sæti. Leicester er með jafnmörg stig en lakari markatölu en Liverpool.
Hvaða lið fara í Meistaradeildina?
Fjögur efstu lið deildarinnar komast í Meistaradeildina og einnig Chelsea ef liðið endar fyrir utan topp fjóra en vinnur Meistaradeildina. Mest fimm ensk lið geta komist í Meistaradeildina.



Chelsea er öruggt með því að ná Meistaradeildarsæti ef liðið vinnur Aston Villa á Villa Park á sunnudaginn klukkan 15 en þá fer lokaumferðin fram.

Liverpool og Leicester fara inn í lokaumferðina jöfn með 66 stig en Liverpool er með betri markatölu. Ef Liverpool vinnur Crystal Palace á Anfield 1-0 þá þarf Leicester að vinna Tottenham með fimm marka mun til að enda í fjórða sætinu.

Lokaumferðin á sunnudag (15:00):
Chelsea á Aston Villa á útivelli
Liverpool á Crystal Palace heima
Leicester á Tottenham heima
Leicester er bikarmeistari. En kemst liðið í Meistaradeildina?

Leicester er bikarmeistari. En kemst liðið í Meistaradeildina?

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Leikmenn Chelsea fagna.

Leikmenn Chelsea fagna.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.