Fotbolti.net
20.05.22 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Carragher: Man City hefur öllu að tapa

Jamie Carragher.

Jamie Carragher.

Canon

Mynd: Getty Images

Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, segir að Manchester City hafi „öllu að tapa" í lokaumferðinni og segir að liðið muni fara inn í helgina með ótta um að Liverpool gæti hirt toppsætið af þeim.

Liverpool er einu stigi á eftir Manchester City fyrir lokaumferðina í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer á sunnudag. Liverpool fær Wolves í heimsókn á sama tíma og Manchester City tekur á móti Aston Villa.
„Liverpool hefur unnið tvo úrslitaleiki og er að fara í þann þriðja. Að fá eitthvað á sunnudag yrði stórkostlegur bónus. Það er búið að skipuleggja fagnaðarlæti sama hvað gerist, það verður partí-andrúmsloft á Anfield og stuðningsmenn bíða spenntir eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í París," segir Carragher.

„City hefur öllu að tapa. Þetta er síðasta tækifæri liðsins til að vinna bikar á tímabilinu. Þeir fara inn í helgina með sjálfstraust og ótta. Þeirra væntingar til sunnudagsins er að þeir eigi að verða meistarar."

„Það er rómantík að sjá Steven Gerrard sem síðustu hindrun City og hugsa 'er þetta skrifað í skýin fyrir Liverpool?'. Verst er að Gerrard er ekki að spila sjálfur og því miður fyrir Klopp er enginn leikmaður Villa eins góður og hann var."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.