16.11.26 - 20:51
Kári Snorrason
Aron Einar: Greip þessa treyju árið 2008 og ætlaði aldrei að gefa hana frá mér
Auglýsing

Kveður landsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jafnaði leikjametið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tolleraður eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kveður landsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Einar Gunnarsson lék fyrr í kvöld sinn síðasta landsleik er hann kom inn á í 3-0 sigri Íslands gegn Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Þar með spilaði Aron sinn 113. landsleik og jafnaði hann leikjamet Birkis Bjarnasonar.
Fótbolti.net ræddi við Aron að leik loknum.

Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
Ætlaði aldrei að gefa treyjuna frá sér
„Sorg eða söknuður. Ég veit að ég á eftir að sakna þess að vera í kringum hópinn. Ég veit að ég á eftir að sakna þess að undirbúa mig fyrir landsleikjaviku en ég er líka bara þakklátur. Það er svo mikið í þessu, mikið sem er í gangi í hausnum. En ég er bara þakklátur fyrir það að geta staðið úti á þessum velli og kvatt á Laugardalsvelli. Það var draumur,“ segir Aron aðspurður um tilfinningarnar eftir að hafa spilað sinn síðasta landsleik.
„Ég vissi að þetta yrði erfitt sko. Eins og ég sagði við þig síðast hvað maður er búinn að gefa í þetta og þjást, orkan og tíminn. Ég hef aldrei tekið því sem sjálfsögðum hlut að vera valinn í landsliðið. Greip þessa treyju 2008 og ætlaði aldrei að gefa hana frá mér og var að skila henni í dag. Ég vissi að það myndi vera erfið stund,“ sagði Aron jafnframt.
Vendipunktur tapið gegn Króatíu
18 ár, 113 leikir og tvö stórmót, óraði þig fyrir þessu þegar landsliðsferillinn hófst?
„Þetta var draumur, nei, auðvitað ekki. Maður leit ekkert á þetta sem einhvern séns en en ég held að það hafi verið ákveðinn vendipunktur þarna 2013 sem þeir við töpuðum fyrir Króatíu í umspilinu. Það gaf okkur einhvern veginn hungur og sjálfstraust í það að við gætum staðið í þessum þjóðum sem að fara á þessi stórmót. Þannig að ég held að það hafi verið svolítið snúnings- og vendipunktur fyrir okkur sem lið og heild.“
Þakklátur að taka ákvörðunina á eigin forsendum
Aron játar að við það að kveðja landsliðið myndist ákveðið tómarúm. Hann segist þakklátur fyrir það að hafa tekið ákvörðunina að hætta af eigin forsendum.
„Ég veit ekkert hvernig ég verð þegar að næsti landsliðshópur verður tilkynntur. En ég er samt mjög þakklátur fyrir þennan endi og að vita það að þessi ákvörðun er tekin af mér og fjölskyldunni og engum öðrum. Ég er mjög þakklátur fyrir þetta í staðinn fyrir að þetta hafi verið tekið úr höndunum á mér. Ég hlakka til að eyða tíma með drengjunum mínum og konu sem hafa fórnað ýmsu fyrir mig,“ sagði Aron.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.