Fotbolti.net
16.11.26 - 21:53
Brynjar Ingi Erluson

Útilokar ekki að kaupa bandaríska leikmenn til Man Utd

Útilokar ekki að kaupa bandaríska leikmenn til Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino, nýráðinn stjóri Manchester United, útilokar ekki að fá bandaríska landsliðsmenn til félagsins.
Collins, Bassey og McKennie orðaðir við Man Utd
TENGT EFNI

Collins, Bassey og McKennie orðaðir við Man Utd

Pochettino mun stýra bandaríska landsliðinu í síðasta sinn þegar liðið mætir Haítí á morgun.

Í kjölfarið tekur hann við Man Utd, en undanfarna daga hafa verið uppi sögusagnir um að hann vilji taka nokkra leikmenn úr bandaríska landsliðinu með sér til Englands.

Pochettino var spurður út í þessar fregnir og hvort eitthvað væri hæft í þeim, en hann vildi ekki útiloka þann möguleika.

„Þetta er ekki rétti tíminn til að ræða þetta. Alla góða leikmenn dreymir um að komast á hæsta stig. Manchester United er eitt af þeim félögum sem eru á því stigi og það er draumur margra að spila þar,“ sagði Pochettino.

Hann stýrir United í fyrsta sinn um helgina þegar liðið heimsækir erkifjendurna í Liverpool á Anfield.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.