Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 20. maí 2022 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Di Maria kveður PSG - Fer líklega til Juve
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria hefur kvatt leikmenn og starfsfólk PSG. Í dag birti hann mynd á Instagram þar sem hann þakkar fyrir sig.

Di Maria er 34 ára sóknarsinnaður leikmaður sem hefur verið í París frá árinu 2015 þegar hann kom frá Manchester United.

Sem leikmaður PSG hefur hann fimm sinnum orðið franskur meistari, fimm sinnum franskur bikarmeistari, fjórum sinnu franskur deildarbikarmeistari, fjórum sinnum meistari meistaranna og árið 2020 fór hann með liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Di Maria er uppalinn hjá Torito og Rosario Central. Árið 2007 fór hann til Benfica, næst fór hann til Real Madrid og árið 2014 fór hann til Man Utd og var þar í eitt tímabil.

Hann á þá að baki 121 leik að baki með argentínska landsliðinu. Fabrizio Romano greinir frá því á Twitter reikningi sínum að Di Maria sé í viðræðum við ítalska félagið Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner