Þór/KA 1 - 3 Breiðablik
0-1 Agla María Albertsdóttir ('54, víti)
0-2 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('67)
0-3 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('69)
1-3 Hulda Ósk Jónsdóttir '93
0-1 Agla María Albertsdóttir ('54, víti)
0-2 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('67)
0-3 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('69)
1-3 Hulda Ósk Jónsdóttir '93
Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 3 Breiðablik
Þór/KA tók á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks í spennandi slag í Bestu deildinni í kvöld og var staðan markalaus eftir fjörugan fyrri hálfleik.
Heimakonur byrjuðu vel fyrstu mínúturnar á Akureyri en Blikar tóku völdin á vellinum og sóttu í sig veðrið út fyrri hálfleikinn. Þór/KA fékk sín færi en Blikakonur voru ótrúlega óheppnar að setja boltann ekki í netið fyrir leikhlé.
Í síðari hálfleik náðu gestirnir loks forystunni þegar Agla María Albertsdóttir skoraði úr vítaspyrnu eftir að María Dögg Jóhannesdóttir braut á Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur.
Blikar sóttu stíft eftir opnunarmarkið og gerðu brátt út um leikinn þökk sé mörkum frá Hrafnhildi Ásu og Edith Kristínu Kristjánsdóttur. Hrafnhildur skoraði fyrst eftir glæsilegt samspil við Öglu Maríu áður en Agla lagði upp fyrir Edith með góðri sendingu.
Agla skoraði því eitt mark og gaf tvær stoðsendingar á fimmtán mínútna kafla til að gera út um þessa viðureign.
Þór/KA reyndi að minnka muninn á lokakaflanum. Boltinn datt í stöngina eftir misskilning í vörn Blika á 72. mínútu og náðu Akureyringar loks að minnka muninn með síðustu snertingu leiksins, þegar Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði eftir frábæran sprett upp hægri kantinn. Lokatölur 1-3.
Breiðablik er því áfram með fullt hús stiga eftir fimm umferðir. Þór/KA er aðeins með tvö stig.



