Fotbolti.net
20.05.26 - 18:01
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarninn

Byrjunarlið Freiburg og Aston Villa: Lindelöf á miðjunni

Byrjunarlið Freiburg og Aston Villa: Lindelöf á miðjunni
Canon

Mynd: EPA

Freiburg og Aston Villa eigast við í gríðarlega spennandi úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Istanbúl í kvöld.
Bæði lið mæta til leiks með sjálfstraustið í botni eftir frábæra sigra um helgina, þar sem Freiburg vann 4-1 gegn RB Leipzig og Aston Villa skoraði að sama skapi fjögur mörk í frábærum sigri gegn Liverpool.

Julian Schuster þjálfari Freiburg gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu sem fór illa með RB Leipzig. Philipp Treu kemur inn í vinstri bakvarðarstöðuna fyrir Jordy Makengo sem sest á bekkinn og þá kemur fyrirliðinn Vincenzo Grifo aftur inn í byrjunarliðið.

33 ára Grifo tekur byrjunarliðssætið sitt á vinstri kantinum fyrir Derry Scherhant sem sest á bekkinn.

Unai Emery þjálfari Aston Villa notar sama byrjunarlið og lagði Liverpool að velli um helgina. Victor Lindelöf heldur sæti sínu í byrjunarliðinu þar sem hann spilar sem varnarsinnaður miðjumaður.

Freiburg: Atubolu, Kubler, Ginter, Lienhart, Treu, Eggestein, Hofler, Beste, Manzambi, Grifo, Matanovic.
Varamenn: Gunter, Holer, Huth, Irie, Jung, Makengo, Muller, Ogbus, Osterhage, Philipp, Rosenfelder, Scherhant.

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Torres, Digne, Lindelof, Tielemans, McGinn, Buendia, Rogers, Watkins.
Varamenn: Bizot, Wright, Mings, Elliott, Garcia, Abraham, Sancho, Douglas Luiz, Maatsen, Onana, Bogarde, Bailey.
Byrjunarlið Freiburg og Aston Villa: Lindelöf á miðjunni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.