Unai Emery var í sjöunda himni eftir frábæran sigur Aston Villa í úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrr í kvöld.
Aston Villa vann þægilegan 3-0 sigur til að tryggja sér sinn fyrsta mikilvæga Evróputitil síðan 1982 en þetta er í fimmta sinn sem Emery vinnur keppnina á tólf árum. Til gamans má geta að öll liðin sem Emery hefur stýrt til sigurs í keppninni innihalda 'villa' í nafninu. Sevilla, Villarreal og núna Aston Villa.
„Ég er alltaf mjög þakklátur fyrir Evrópukeppnir. Ég er þakklátur fyrir allar keppninnar en sérstaklega Evrópudeildina," sagði Emery brosandi, enda hefur hann aldrei komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eða Sambandsdeildarinnar.
„Við spiluðum frábærlega í Evrópudeildinni og ég er stoltur af strákunum. Ég bað strákana um að sanna sig og þeir gerðu það. Þetta, ásamt góðu gengi í úrvalsdeildinni, sannar að við erum á réttri braut. Þetta er mjög mikilvægt fyrir okkur og líka fyrir stuðningsmennina. Við erum mjög stoltir.
„Við erum ekki á neinni endastöð. Við erum að styrkja okkur sífellt meira með hverju árinu. Við erum að vinna í að stækka völlinn um 10,000 sæti og erum að bæta gæðin á æfingasvæðinu. Framtíðin hérna er björt og við verðum að vera kröfuharðir á öllum sviðum. Við verðum að vera með toppaðstæður ef við viljum keppa við bestu liðin.
„Við erum með sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð og höldum áfram að vinna hörðum höndum að því að bæta félagið, leikmannahópinn og liðið."
Markmiðið er að bæta orðspor Aston Villa svo að gæðamiklir fótboltamenn vilji fara til liðsins til að keppast um titla frekar en að nýta félagið sem stökkpall til að fara til stærra félags, eins og Emiliano Martínez markvörður hefur verið sakaður um að gera.
„Vörumerkið okkar er að stækka um allan heim og við erum að gera góða hluti. Við erum að spila úrslitaleiki og vinna titla. Við verðum að halda því áfram til að stækka félagið. Við erum metnaðarfullir og við vitum að það er enn langur vegur framundan."
20.05.2026 20:56
Evrópudeildin: Fyrsti Evróputitill Aston Villa síðan 1982!


