Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man City gæti misst annan algjöran lykilmann í sumar
Mynd: EPA
Spænska blaðið Marca er með mynd af spænska miðjumanninum Rodri á forsíðu sinni í mogun. Rodri er lykilmaður Manchester City.

Blaðið segist hafa heimildir fyrir því að Rodri (1996) vilji fara til Real Madrid vegna þess að Pep Guardiola sé að hætta sem stjóri City. Það verður ekki annað sagt en að þeir tveir séu algjörir lykilmenn hjá félaginu.

„Að fá Rodri hefur lengi verið draumur Real Madrid. Það að Guaridola sé að fara opnar dyrnar sem hafa í mörg ár verið harðlæstar," segir í blaðinu.

Það er allt nema (Staðfest) að Guardiola fari frá City í sumar en enskir miðlar fjölluðu margir um það á mánudag að hann væri á förum. Spænski stjórinn á ár eftir af samningi sínum við félagið.

Marca segir að nafn Rodri sé nefnt í hverjum einasta félagaskiptaglugga hjá Real Madrid. Hann á að vera maðurinn sem nær aftur skipulagi á miðsvæði liðsins.

Nú er sagt að Rodri sé mjög opinn fyrir því að fara til Real eftir fréttirnar af Guardiola og Marca segir að góðar líkur séu á því að Rodri fari til Real í sumar. Rodri var valinn besti leikmaður heims árið 2024 eftir að hafa orðið Evrópumeistari með Spánverjum.
Slapp
banner
banner
banner