Aston Villa er að keppa við Freiburg í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þessa stundina og er enska úrvalsdeildarliðið tveimur mörkum yfir í hálfleik.
Staðan var markalaus allt þar til á 41. mínútu, þegar Youri Tielemans skoraði með glæsilegu viðstöðulausu skoti eftir háa sendingu í kjölfar stuttrar hornspyrnu.
Tielemans þurfti að nota flókna skottækni til að smellhitta boltann og stýra honum í netið.
Sjáðu mark Youri Tielemans
Dómarateymið bætti þremur mínútum við í uppbótartíma fyrri hálfleiks og á síðustu sekúndunni tvöfaldaði Emiliano Buendía forystu Villa með draumamarki rétt utan vítateigs.
Buendía tók á móti boltanum, sneri sér við og skrúfaði hann í samskeytin fjær þar sem markvörður Freiburg kom engum vörnum við.
Sjáðu mark Emiliano Buendía
Aston Villa er á góðri leið með að vinna sinn fyrsta mikilvæga Evróputitil síðan 1982 á meðan Unai Emery þjálfari er að vinna keppnina í fimmta sinn á tólf árum.
Villa fór furðu auðveldlega í gegnum útsláttarkeppnina. Liðið vann samanlagt 3-0 gegn Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í Lille í 16-liða úrslitunum og svo fylgdi 7-1 stórsigur gegn Bologna í 8-liða úrslitum. Eftir það fór Villa illa með Nottingham Forest í undanúrslitum, 4-1 samanlagt.

