mán 20. júní 2022 16:30
Elvar Geir Magnússon
Rudiger: Ákvað að fara til Real Madrid eftir að hafa rætt við Ancelotti
Antonio Rudiger.
Antonio Rudiger.
Mynd: Getty Images
Þýski varnarmaðurinn Antonio Rudiger segist hafa ákveðið að ganga í raðir Real Madrid eftir að hann spjallaði við Carlo Ancelotti, þjálfara liðsins.

Rudiger er 29 ára og yfirgaf Chelsea eftir að samningur hans rann út. Chelsea náði ekki að gera nýjan samning við hann.

Rudiger sat fyrir svörum á fréttamannafundi hjá Real Madrid í dag.

„Félagið hafði fyrst samband við umboðsmanninn minn í september á síðasta ári. Í apríl þá ræddi ég svo við Ancelotti. Það var lykilstund. Það var þá sem ég ákvað að verða leikmaður Real Madrid," segir Rudiger.

Rudiger vann fimm titla hjá Chelsea, þar á meðal Meistaradeild Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner
banner