Fotbolti.net
20.06.26 - 11:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

McGinn: Marokkóar voru heppnir

McGinn: Marokkóar voru heppnir
Canon

Mynd: EPA

Skotland tapaði gegn Marokkó 1-0 í C-riðli á HM í gær. Brasilía er á toppnum með fjögur stig eftir sigur á Haíti, Marokkó í öðru með fjögur stig og Skotland í 3. sæti með þrjú stig.
Skotar vildu fá tvær vítaspyrnur í leiknum. John McGinn vildi fá vítaspyrnu þegar hann féll í teignum snemma í seinni hálfleik.

„Það er ekkert vandamál að leyfa leiknum að fljóta en það verður að vera samræmi. Stundum er það með þér og stundum á móti. Ef hann hefði dæmt víti í einhverjum af þessum atvikum tel ég að VAR hefði ekki stigið inn í," sagði McGinn.

„Ég sé hann koma að mér og ef maður nær fyrstu snertingu á boltann tekur hann mig niður og hann gerði það. Þetta er víti fyrir mér en stundum færðu hana og stundum ekki. Ef dómarinn dæmir er ekki séns að það sé tekið til baka. Marokkóar voru heppnir að sleppa þarna."
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.