Fotbolti.net
20.06.26 - 00:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dressmann

Andri Geir spáir í leiki dagsins á HM

Steve Dagskrábræður Andri Geir og Vilhjálmur Freyr Hallsson

Steve Dagskrábræður Andri Geir og Vilhjálmur Freyr Hallsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru fjórir leikir framundan næsta sólarhringinn á HM. Línur eru svo sannarlega farnar að skýrast.

Andri Geir Gunnarsson, annar helmingur Steve Dagskrá hlaðvarspins, spáir í leikina sem framundan eru á HM. Hann spáir því að Brasílíumenn mæti trylltir gegn Haíti á eftir.
Brasilía 4 - 0 Haíti (00:30)
Brassarnir koma gjörsamlega trylltir inní þennan leik. Cunha kemur inn fyrir Igor og það á eftir að muna um það. Raphina er líka búinn að segjast ætla að taka fullan þátt. Gabriel með eitt, Raphina tvö og Vini sennilega með eitt líka.

Tyrkland 1 – 0 Paragvæ (03:00)
Þetta verður því miður ekkert það skemmtilegur leikur. Tyrkirnir mæta samt reiðir og það er ekki gott fyrir Paragvæana. Calhanoglu skorar með þrusu og Montella tekur flugvélina á hliðarlínunni.

Holland 1 – 1 Svíþjóð (17:00)
Þetta verður sænskt ryðfrítt stál í stál. Gyokeres límir sig á De Jong, trukkast í gegn og setur eitt. Malen jafnar svo úr sinni tólftu skottilraun í leiknum.

Þýskaland 1 - 2 Fílabeinsströndin (20:00)
Bonny skorar fyrsta markið eftir misheppnaða hælspyrnu hjá Neuer. Diomande eykur svo forustuna í byrjun seinni hálfleiks eftir öflugt hlaup á fjær. Havertz minkar muninn úr víti rétt eftir vatnspásu en þar við situr. Nagelsmann verður svo eins og vanalega í einhverju hit and miss dressi, skiptir í hálfeik í eitthvað ennþá verra.
Raphinha skorar tvennu

Raphinha skorar tvennu

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.