20.06.26
Hvað er málið með bleiku skóna á HM?
EFTIR GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Það er erfitt að horfa á heimsmeistaramótið sem núna fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó án þess að taka eftir skóm leikmanna. Á fótum flestra leikmannanna skína nefnilega skærbleikir takkskór.
Á stórmótum á borð við HM er hvert smáatriði vandlega úthugsað. Búningar, hárgreiðslur og fagnaðarlæti vekja athygli, en fátt er jafn sýnilegt og skórnir sjálfir. Þeir eru orðnir hluti af ímynd leikmanna, markaðssetningu framleiðenda og menningu fótboltans.
Fyrir stærstu íþróttavörumerki heims er HM mikilvægasti sýningarglugginn. Þar fá nýjustu skógerðirnar, litirnir og tæknilausnirnar athygli milljarða áhorfenda. Fyrir yngri iðkendur eru skórnir ekki síður mikilvægir, enda vilja margir líkjast fyrirmyndum sínum.
Blaðamaður ræddi við Andra Geir Gunnarsson úr hlaðvarpinu Steve Dagskrá og Benedikt Almar Bjarkason, eiganda Boltamannsins, um þróunina á HM í ár, áhrif stórmóta á skósölu og þá skó sem hafa skilið eftir sig dýpstu sporin í sögu heimsmeistaramótsins.