Fotbolti.net
20.06.26 - 12:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Góðar og slæmar fréttir fyrir Brasilíu

Góðar og slæmar fréttir fyrir Brasilíu
Canon

Mynd: EPA

Það er óvíst hvað Raphinha, leikmaður brasilíska landsliðsins, verður lengi frá eftir að hann meiddist í 3-0 sigri liðsins gegn Haítí á HM í nótt.
Matheus Cunha skoraði tvennu fyrir Brasilíu áður en Raphinha þurfti að fara af velli undir lok fyrri hálfleiks. Vinicius Junior innsiglaði sigurinn með marki í uppbótatíma fyrri hálfleiks.

„Við vitum ekki hvað gerðist. Ég setti Rayan inn á því hann hefur sýnt góð gæði, hann er öðruvísi leikmaður en Raphinha," sagði Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu.

Ancelotti greindi frá því að Neymar muni byrja að æfa með liðinu eftir helgi og verði klár í slaginn fyrir lokaleikinn í riðlinum gegn Skotlandi á miðvikudaginn.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.