Fotbolti.net
20.06.26 - 02:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Cunha með tvennu í öruggum sigri Brasilíu

HM: Cunha með tvennu í öruggum sigri Brasilíu
Canon

Mynd: EPA

Brasilía 3 - 0 Haítí
1-0 Matheus Cunha ('23 )
2-0 Matheus Cunha ('36 )
3-0 Vinicius Junior ('45 )
Brasilía vann öruggan sigur á Haítí í nótt. Matheus Cunha var í byrjunarliðinu og skoraði tvennu.

Raphinha kom boltanum í netið eftir tólf mínútna leik eftir sendingu frá Bruno Guimaraes inn fyrir vörn Haítí en Raphinha var rangstæður og markið dæmt af.

Brasilía náði forystunni á 24. mínútu. Matheus Cunha vann boltann á miðjunni, sendi hann frá sér og brunaði í átt að teignum. Vinicius Junior átti skot sem Johny Placide, markvörður Haíti, varði boltann út í teiginn þangað sem Cunha var mættur og hann skoraði.

Cunha bætti síðan öðru markinu við með föstu skoti í nærhornið eftir sendingu frá Vinicius. Vinicius skoraði síðan þriðja mark Brasilíu undir lok fyrri hálfleiks.

Brasilía var með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik. Haíti fékk tækifæri í seinni hálfleik og Alisson varði skalla frá Ricardo Ade eftir rúmlega klukkutíma leik.

Endrick kom inn á stuttu síðar og hann kom boltanum í netið en aftur var mark dæmt af Brössum vegna rangstöðu.

Fleiri mörk urðu ekki skoruð og öruggur sigur Brasilíu staðreynd. Brasilía er á toppnum með fjögur stig eins og Marokkó. Skotland er í 3. sæti með þrjú stig en Haíti rekur lestina án stiga og er fyrsta liðið sem er fallið úr leik.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
HM: Cunha með tvennu í öruggum sigri Brasilíu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.