Illa staðið að brottrekstrinum

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Síðasta föstudagskvöld var greint frá því að Jökull Elísabetarson hefði verið látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar eftir um þrjú ár sem aðalþjálfari meistaraflokks karla. Í tilkynningu Stjörnunnar var sagt frá því að stjórn hefði gert samkomulag við Jökul um starfsok.
Gengi liðsins hafði ekki verið gott fyrstu vikur og mánuði Íslansmótsins, einungis þrír sigrar í deildinni, og tveimur dögum fyrir tíðindin hafði Stjarnan tapað gegn Lengjudeildarliði Aftureldingar.

Í útvarpsþættinum Fótbolta.net var sagt frá slúðri um að Jökull hefði lesið um yfirvofandi brottrekstur á netinu áður en stjórnin hafði rætt við hann.
Strax á föstudagsmorgun fóru að heyrast slúðursögur um að búið væri að taka ákvörðun um að láta Jökul fara, sem dæmi hafði Dr. Football fengið ábendingu um að Jökull yrði látinn fara fyrir hádegi þann daginn. Fótbolti.net greindi svo frá því 15:04 á föstudag að tíðinda væri að vænta úr Garðabæ og ekki fyrr en klukkan 20:10 gaf Stjarnan út tilkynningu sína og ýtir sú tímasetning undir slúðurfregnirnar.
Það heyrðist af því að Stjarnan hefði kannað aðra kosti en niðurstaðan varð sú að Jón Þór Hauksson tók við liðinu og samdi út tímabilið 2027.
Þá heyrðist einnig að leikmannahópur Stjörnunnar hefði staðið þétt við bakið á Jökli og var viðtalið við Emil Atlason eftir leikinn gegn Breiðabliki á þriðjudagskvöld staðfesting á því. Eins og áður hefur verið sagt frá þá er ákvörðun stjórnar þó vel skiljanleg ef horft er í gengið og spilamennsku liðsins síðustu vikur á undan. Leikmenn gerðu ekki nóg til að halda þjálfaranum sínum í starfi.
Kostnaðarsamt að skipta um þjálfara
Það er dýrt að fara í þjálfarabreytingar og þjálfarar eru misvel tryggðir þegar kemur að mögulegum brottrekstri. Það er um mánuður í að glugginn opnar og spurning hvort að upphæðin sem þarf að greiða Jökli komi í veg fyrir kaup á leikmanni eða leikmönnum í glugganum.
Jón Þór sagði við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Breiðabliki að hann gerði ráð fyrir því að aðstoðarmaðurinn, Hrannar Bogi Jónsson, yrði áfram í teyminu, en staðfesti það þó ekki. Það yrði mögulega enn meiri kostnaður fyrir Stjörnuna ef hann yrði ekki áfram.