Fotbolti.net
19.06.26 - 22:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fjarðabyggðarhöllin uppfyllir kröfur KSÍ - FHL harmar atvikið og umfjöllunina

Fjarðabyggðarhöllin uppfyllir kröfur KSÍ - FHL harmar atvikið og umfjöllunina
Canon

Mynd: KR

Hertz
Mikil umfjöllun hefur skapast um aðstæður í Fjarðabyggðarhöllinni eftir að Makayla Soll, fyrirliði KR, úlnliðsbrotnaði á báðum höndum í leik gegn FHL í Lengjudeild kvenna um síðustu helgi.

Atvikið gerðist undir lok fyrri hálfleiks þegar Alexis Simone Wright ýtti Soll á vegg með þeim afleiðingum að hún úlnliðsbrotnaði á báðum höndum og Wright var rekin af velli.
Fyrirliði KR úlnliðsbrotnaði á báðum höndum í Fjarðabyggðarhöllinni
TENGT EFNI

Fyrirliði KR úlnliðsbrotnaði á báðum höndum í Fjarðabyggðarhöllinni

Það kemur fram í frétt á Austurfrétt.is að höllin uppfylli kröfur KSÍ. Þá sendi FHL frá sér yfirlýsingu og harmar umfjöllun þar sem margir furða sig á því að liðið spili í höllinni.

Yfirlýsing FHL
Í leik FHL – KR þann 14. júní sl þá verður það hræðilega slys að leikmaður KR slasast illa, eftir að lenda harkalega á vegg með þeim afleiðingum að hún brotnar á báðum höndum. Í kjölfar brots upp við hornfána og þurfti frá að hverfa í sjúkrabíl.

Við hörmum þá umfjöllun sem hefur fylgt í kjölfarið og hefur það haft töluverð áhrif á lið FHL og þá sjálfboðaliða sem starfa í þessu umhverfi, þar sem allir eru að gera sitt besta.

Fjarðabyggðarhöllinn sem er heimavöllur FHL, uppfyllir þau skilyrði sem reglugerð KSÍ gerir um keppnisvelli í knattspyrnuhúsum. Eins og fram kemur í frétt hjá Austurfrétt í dag stendur til að uppfæra reglugerð KSÍ er varðar öryggi leikmanna á þrengri öryggissvæðum og mun FHL fara yfir þessi mál með eigendum Fjarðabyggðarhallarinnar.

Stjórn, þjálfarar og leikmenn harma atvikið og senda leikmanni KR, Makayla Soll, sínar bestu batakveðjur.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.