20.07.15 - 09:29
Magnús Már Einarsson
Ólafur Ingi til Gençlerbirliği (Staðfest)

Mynd: Twitter

Mynd: Twitter
Ólafur Ingi Skúlason hefur samið við tyrkneska félagið Gençlerbirliği. Ólafur Ingi skrifaði undir eins árs samning með möguleika á árs framlengingu.
Ólafur kemur til Tyrklands frá Zulte-Waregem í Belgíu en þar hefur hann spilað frá 2011.
Gençlerbirliği sigldi lygnan sjó í tyrknesku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en liðið endaði í níunda sæti.
Stuart Baxter, fyrrum landsliðsþjálfari Suður-Afríku og Finnlands, þjálfar liðið en hann þjálfaði Ólaf hjá Helsingborg í Sviþjóð á sínum tíma.
Ólafur er 32 ára og á 25 landsleiki að baki fyrir Ísland. Hann er uppalinn Fylkismaður.

It\'s official: @oliskulason16 has signed with @kirmizikara. Here he\'s with GM, Emrah Atasoy. #TeamTotalFootball pic.twitter.com/w4GHZNnvwu
— Total Football (@totalfl) July 20, 2015