Það er alltaf líf og fjör í 2. deildinni en síðasta laugardag voru fimm leikir spilaðir.
Einn af þessum leikjum var leikur ÍR og Völsungs í neðra Breiðholtinu.
Þar unnu Húsvíkingar flottan sigur, 1-3. Santiago Feuillassier Abalo var með tvennu í leiknum en hann skoraði svo sannarlega eitt af mörkum sumarsins.
Völsungur birtir myndband af markinu á Twitter og skrifar við það: „Santiago er galdrakall."
Hægt er að sjá myndband af markinu hér að neðan. Glæsilegt mark!
Santiago er galdrakall 🪄🪄#allirígallana pic.twitter.com/uXzGpApXe5
— Græni Herinn (@Volsungur) July 19, 2021
Athugasemdir