Fotbolti.net
20.08.26 - 14:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Daníel Tristan: Malmö vill ekki sleppa mér

Daníel Tristan: Malmö vill ekki sleppa mér
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan Guðjohnsen var í gær sagður á förum frá sænska félaginu Malmö. Aftonbladet greindi frá og sagði að Arminia Bielefeld í Þýskalandi vildi fá hann á láni með kaupmöguleika.

Daníel er tvítugur framherji sem hefur takmarkað fengið að spila á tímabilinu og því ekki óvænt að hann sé orðaður burt.
Daníel Tristan að yfirgefa Malmö
TENGT EFNI

Daníel Tristan að yfirgefa Malmö

Daníel segir í viðtali við Fotbollskanalen að Malmö vilji ekki sleppa honum í burtu.

„Ég þarf að hugsa vel um hvað ég geri. Ég myndi segja að það (Bielefeld) væri fullkomið skref miðað við stöðuna sem ég er í," segir Daníel Tristan.

„En eins og staðan er núna vill Malmö ekki sleppa mér í burtu. Þannig er bara staðan - ég veit ekki hvað gerist. Ef ég er hér, þá spila ég glaður, alveg eins ef ég spila þar," segir Daníel.

Hann er samningsbundinn Malmö út 2028.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.