Fotbolti.net
20.08.26 - 22:49
Andri Stefánsson

Óskar segir stöðuna ekki eins hræðilega og rætt er um: Stjarnan á líka kvennalið

Auglýsing
„Við vildum sýna í dag að staðan hjá Stjörnunni er ekki eins hræðileg og ómöguleg og margir vilja meina“

„Við vildum sýna í dag að staðan hjá Stjörnunni er ekki eins hræðileg og ómöguleg og margir vilja meina“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Stjarnan tók á móti Breiðablik í 16. umferð Bestu deildar kvenna. Stjarnan sigraði 2-0 og leikið var í Miðgarði vegna framkvæmda á Samsungvellinum. Fótbolti.net ræddi við Óskar Smára Haraldsson, þjálfara Stjörnunnar, eftir leik.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 Breiðablik
„Ég er stoltur og kátur. Þetta var geggjaður leikur og ógeðslega gaman. Mér fannst þetta vera algjör liðssigur. Þær gáfu allt í þetta og í hvert skipti sem Breiðablik reyndi að kýla okkur niður kýldum við til baka. Mér líður feikilega vel og ég er ótrúlega stoltur af liðinu í dag,“ sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigurinn gegn Breiðablik.


Hvernig gerir þú leikinn upp?

„Ég geri þetta mjög einfaldlega upp: Við skoruðum tvö mörk en þær ekkert. Það er ekki hægt að segja að Breiðablik hafi ekki fengið færi því þær fengu svo sannarlega fullt af færum. Það eru einnig margir hlutir sem við þurfum að gera betur.“

„Mér fannst liðið sem vildi vinna leikinn meira hafa unnið hann. Liðið sem lagði meira á sig og hafði meiri trú á sér vann leikinn. Ég vona að við tökum þetta með okkur inn í næstu leiki því við getum allt sem við viljum. Við eigum aðeins einn óvinnandi andstæðing og það erum við sjálf.“


„Í aðdraganda leiksins hefur verið talað mikið niður til okkar á samfélagsmiðlum. Það hefur sært okkur, félagið og stolt okkar sem knattspyrnuliðs. Við vildum sýna í dag að staðan hjá Stjörnunni er ekki eins hræðileg og ómöguleg og margir vilja meina. Stjarnan á víst bæði karla- og kvennalið.“

Breiðablik hafði verið feikilega öflugt sóknarlega og vann FH 3-0 í síðasta leik. Voruð þið með sérstakt plan til að stöðva sóknarlínu þeirra?

„Já auðvitað, en mér fannst varnarleikur okkar fyrst og fremst einkennast af baráttu, vilja og eljusemi. Breiðablik komst oft í góðar stöður og fékk fullt af færum. Markvörðurinn okkar varði örugglega fjórtán eða fimmtán skot í leiknum.“

„Ég vissi þegar ég vaknaði í morgun og fékk mér kaffibolla að Breiðablik myndi fá færi. Varnarlega lögðu leikmennirnir allt í þetta, unnu baráttuna, hjálpuðu hver öðrum og lokuðu svæðum. Við þurftum einnig smá heppni gegn liði eins og Breiðablik og fengum hana í dag.“

Hvernig fannst þér að spila í Miðgarði í kvöld?

„Við reyndum að einbeita okkur að því að láta þetta ekki líta út eins og æfingaleik. Það var skrítið að þurfa að færa leikinn hingað en ég vil hrósa vallarstarfsmönnunum og öllum hjá Stjörnunni sem hafa unnið hörðum höndum síðustu daga til að láta þetta ganga upp.“

„Við ákváðum að þetta væri Miðgarður, okkar heimavöllur, og að okkur þyrfti að líða vel hér. Það tókst og ég skemmti mér konunglega. Kannski spilum við fleiri leiki í Miðgarði.“

Skiptingarnar hjá þér skiluðu miklu - Vigdís Edda kom inn og skoraði mikilvæga fyrsta markið.

„Hún var frábær. Hún kom frá FH á láni og þetta var aðeins annar leikurinn hennar. Hún kom inn á í síðasta leik og lagði upp mark og var frábær eftir að hún kom inn á í dag. Það var ekki aðeins markið heldur einnig dugnaðurinn og vinnusemin. Hún vann vel og á mikið hrós skilið.“

„Seinna markið kom einnig af bekknum og fleiri leikmenn komu inn og hjálpuðu okkur að klára síðustu tuttugu mínúturnar. Mér fannst allir leggja sitt af mörkum og ég get ekki tekið neinn einn út fyrir sviga. Ég get farið yfir hvern einasta leikmann og hrósað honum. Þetta var risastór liðssigur.“


Þið eruð komin upp fyrir ÍBV og í þriðja sætið. Hvað þýðir það fyrir framhaldið?

„Það er geggjað en við viljum vinna alla leikina sem eftir eru. Við erum hvergi örugg með sæti í efri hlutanum því deildin er ótrúlega jöfn. Við þurfum að taka einn leik í einu og sjá hvað gerist.“

„Við eigum Fram og Víking eftir og það verða mjög erfiðir leikir. Þessi sigur gefur okkur ógeðslega mikið fyrir framhaldið. Ég er spenntur og tilbúinn í næsta verkefni.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.