Fotbolti.net
20.08.26 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Stormasamt á bak við tjöldin í Garðabæ

Jón Þór Hauksson var rekinn í morgun.

Jón Þór Hauksson var rekinn í morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tímabilið í Garðabænum hefur verið stormasamt svo vægt sé til orða tekið og í annað sinn í sumar hefur verið tekin ákvörðun um að reka þjálfarann. Jón Þór Hauksson hefur verið látinn fara eftir tæpar tíu vikur í starfi.

Jón Þór stýrði Stjörnunni í þrettán leikjum í deild og Evrópu. Fimm þeirra unnust, fimm töpuðust og jafnteflin urðu þrjú. Stjarnan tapaði fyrir Fram í síðasta leik Jóns Þórs en hafði unnið tvo leiki í röð þar á undan.

Það er alveg ljóst að ýmislegt hefur gengið á bak við tjöldin, eitthvað sem Stjarnan reynir að halda frá yfirborðinu, því gengið eitt og sér er varla eina ástæðan fyrir þessari ákvörðun núna.

Stjórnarmenn Stjörnunnar vilja engu bæta við þá yfirlýsingu sem gefin var út í morgun en sú yfirlýsing segir afskaplega lítið. Eftir standa ýmsar sögusagnir og orðrómar.
Jón Þór rekinn frá Stjörnunni (Staðfest)
TENGT EFNI

Jón Þór rekinn frá Stjörnunni (Staðfest)

Jón Þór tók við erfiðu búi - Erfiður klefi?
Garðbæingar áttu að vita nákvæmlega hvað þeir voru að fá í Jóni Þór enda hafði hann áður starfað sem aðstoðarþjálfari hjá félaginu áður en hann tók við 13. júní í sumar, eftir að Jökull Elísabetarson var rekinn í kjölfar mikilla vonbrigða með gengið, spilamennskuna og frammistöðuna.

Mikið hefur verið talað um að leikmannahópur Stjörnunnar hafi verið mjög leiður yfir því að Jökull hafi verið látinn taka pokann sig þó flestir séu sammála um að algjört andleysi hafi verið áberandi hjá liðinu undir hans stjórn á tímabilinu. Menn sýndu það engan veginn að þeir væru að spila fyrir þjálfarann, hvað þá merkið. Spurningamerki hefur þá verið sett við líkamlegt ástand nokkurra lykilmanna.

Jón Þór með hærra meðaltal en Jökull
Svo virðist sem það hefði verið erfitt verkefni fyrir hvern sem er að taka við liðinu á þessum tímapunkti sem Jón Þór kemur inn. Mikilvægir leikmenn sjái á eftir Jökli og óánægja verið ríkjandi.

Sögusagnir eru um að starf Jóns Þórs hafi þegar hangið á bláþræði fyrir nokkrum vikum, fyrir leikinn gegn Keflavík, og þá heyrðist að óánægja einhverra leikmanna hafi verið slík að það hafi þurft að sannfæra þá um að mæta í leik.

Undir stjórn Jóns Þórs náði Stjarnan í 11 stig í 9 leikjum í Bestu deildinni eða 1,22 að meðaltali í leik. Jökull náði í 10 stig í 10 leikjum í sumar; 1 stig að meðaltali í leik.

Ljóst er að það hefur talsverð ólga verið í Garðabænum og sögur verið á lofti um dramatík í klefanum. Fjallað hefur verið sérstaklega um óánægju eins leikmanns, Daníels Finns Matthíassonar, sem hefur verið skilinn eftir utan hóps undanfarna leiki.

Það eru ýmsar vísbendingar um að óánægja leikmanna hafi á endanum orðið til þess að stjórnin ákvað að kveðja Jón Þór.

Hvað næst?
Eins og áður segir þá segir fréttatilkynning Stjörnunnar ekki mikið meira en að Jón Þór hafi verið látinn fara. Félagið vill ekki bæta neinu við það svo ekki er annað hægt en að geta í eyðurnar og velta þeim sögusögnum sem eru í gangi fyrir sér.

Stjarnan situr í 9. sæti Bestu deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti og fjórum stigum frá sæti í efri hlutanum þegar þrjár umferðir eru eftir fram að tvískiptingu.

Olgeir Sigurgeirsson og Brynjar Kristmundsson, þjálfarar venslaliðsins KFG, hafa verið aðstoðarmenn Jóns Þórs og ekki ólíklegt að þeir stýri Stjörnunni í næsta leik, heimaleik gegn Þór á sunnudag.

Líklegast má telja að bráðabirgðaþjálfari verði ráðinn út tímabilið og sögur um að Kristján Guðmundsson, fyrrum þjálfari kvennaliðs félagsins, gæti tekið það hlutverk.

Endurkoma Rúnars Páls?
Sterkar raddir innan Stjörnunnar eiga þann draum að fá Rúnar Pál Sigmundsson aftur í þjálfarastólinn. Hann stýrði liðinu 2014–2021, gerði það að Íslandsmeisturum í fyrsta og eina sinn og gaf stuðningsmönnum Evrópuævintýri sem aldrei gleymist.

Það er oft talin viss áhætta fyrir þjálfara að snúa til baka til félags þar sem þú naust mikillar velgengni en það er þokkalega langur tími liðinn sem gæti hjálpað. Hann gæti þó klárlega náð að lægja öldurnar og fengið klofinn stuðningsmannahópinn til að sameinast á ný.

Rúnar Páll hefur gert flotta hluti með Gróttu, kom liðinu upp í Lengjudeildina í fyrra og liðið á enn möguleika á umspilssæti þar. Maður sér Rúnar ekki kveðja Seltjarnarnesið meðan sá möguleiki sé til staðar.

Heimir Guðjónsson á sér líka aðdáendur í Garðabænum og er ofarlega á mörgum óskalistum. Líkt og Rúnar er Heimir í baráttu með sínu liði í Lengjudeildinni, hann er í starfi hjá Fylki og er að reyna að koma Árbæingum aftur meðal þeirra bestu.

Davíð Snorri Jónasson, Arnar Grétarsson, Eiður Smári Guðjohnsen og Magnús Már Einarsson eru önnur nöfn sem eru í umræðunni.

Svo er ein hugsanleg atburðarás sem sögusagnir eru um; að mögulega verði stjórnarskipti hjá félaginu, hallarbylting og Jökull snúi aftur? Er það of fjarstæðukennt? Miðað við það sem er í gangi hjá Stjörnunni er erfitt að útiloka nokkurn skapaðan hlut.
Jökull var rekinn í júní.

Jökull var rekinn í júní.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan náði í fleiri stig að meðaltali á tímabilinu undir stjórn Jóns Þórs en Jökuls.

Stjarnan náði í fleiri stig að meðaltali á tímabilinu undir stjórn Jóns Þórs en Jökuls.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóni tókst ekki að fá leikmenn á sitt band.

Jóni tókst ekki að fá leikmenn á sitt band.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Olgeir Sigurgeirsson var aðstoðarmaður Jóns Þórs.

Olgeir Sigurgeirsson var aðstoðarmaður Jóns Þórs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæti Kristján Guðmundsson tekið við út tímabilið?

Gæti Kristján Guðmundsson tekið við út tímabilið?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll við hlið Olgeirs í stúkunni í Garðabæ.

Rúnar Páll við hlið Olgeirs í stúkunni í Garðabæ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson á sér aðdáendur í Garðabæ.

Heimir Guðjónsson á sér aðdáendur í Garðabæ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.