20.08.26 - 11:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jón Þór rekinn frá Stjörnunni (Staðfest)

Jón Þór látinn fara.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór látinn fara.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að Jón Þór Hauksson sé ekki lengur þjálfari karlaliðs félagsins.
Jón Þór hefur stýrt liðinu í rúma tvo mánuði en hann var ráðinn sem þjálfari liðsins eftir að Jökull Elísabetarson var látinn taka pokann sinn í júní.
Jón Þór stýrði Stjörnunni í 13 leikjum í deild og Evrópu. Fimm þeirra unnust, fimm töpuðust og jafnteflin urðu þrjú. Stjarnan sló út færeyska liðið Víking Götu undir hans stjórn en datt út eftir vítaspyrnukeppni gegn finnska liðinu Ilves í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni. Síðasti leikur liðsins undir stjórn Jóns Þórs var 3-1 tap gegn Fram á útivelli á mánudag.
Stjarnan situr í 9. sæti Bestu deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti og fjórum stigum frá sæti í efri hlutanum þegar þrjár umferðir eru eftir fram að tvískiptingu.
Í tilkynningu Stjörnunnar er ekki sagt frá því hver tekur við af Jóni Þór. Olgeir Sigurgeirsson og Brynjar Kristmundsson, þjálfarar venslaliðsins KFG, hafa verið aðstoðarmenn Jóns Þórs. Davíð Snorri Jónasson (aðstoðarþjálfari landsliðsins), Heimir Guðjónsson (þjálfari Fylkis) og Rúnar Páll Sigmundsson (þjálfari Gróttu) hafa verið orðaðir við Stjörnuna síðustu mánuði.
Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Þór á sunnudag.

Tilkynning Stjörnunnar
Takk fyrir okkur Jón Þór Hauksson
Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur óskað eftir því við Jón Þór að hann láti af störfum sem þjálfari mfl. kk og hafa aðilar komist að samkomulagi þar um.
Knattspyrnudeildin þakkar Jóni Þór fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Takk fyrir okkur Jón Þór Hauksson
Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur óskað eftir því við Jón Þór að hann láti af störfum sem þjálfari mfl. kk og hafa aðilar komist að samkomulagi þar um.
Knattspyrnudeildin þakkar Jóni Þór fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +44 | 48 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 19 | +13 | 40 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 19 | -5 | 23 |
| 8 | Stjarnan | 19 | -12 | 21 |
| 9 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 19 | -12 | 16 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |