sun 20. september 2020 17:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fabregas: Mane er besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar
Mane fagnar marki.
Mane fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Sadio Mane skoraði bæði mörk Liverpool í 2-0 sigrinum á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.

Mane átti mjög góðan leik og heillaði eflaust marga með frammistöðu sinni. Cesc Fabregas, fyrrum leikmaður Arsenal og Chelsea, er að minnsta kosti heillaður af Senegalanum.

„Ég segi það aftur. Mane er besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar," tístaði Fabregas á meðan leiknum stóð.

Mane er 28 ára gamall. Hann hefur verið magnaður frá því hann gekk í raðir Liverpool frá Southampton fyrir fjórum árum síðan.

Hér að neðan má sjá tíst Fabregas.


Athugasemdir
banner
banner
banner