Fotbolti.net
20.11.20 - 17:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Íslenska U21 landsliðið á EM (Staðfest)

Fagnað gegn Írum og fagnað í kvöld!

Fagnað gegn Írum og fagnað í kvöld!

Canon

Mynd: Getty Images

Íslenska U21 landsliðið mun leika í lokakeppni EM á næsta ári. Það var staðfest í dag.

Þetta staðfesti UEFA við KSÍ í dag. Þetta er í annað sinn sem U21 landsliðið kemst í lokakeppni Evrópumótsins en í hitt skiptið var það árið 2011.
Af vef KSÍ:
Tveir leikir voru eftir í riðlakeppninni - útileikir Íslands og Svíþjóðar við Armeníu - og hefur áfrýjunardómstóll UEFA nú úrskurðað Íslendingum og Svíum 3-0 sigra í þeim leikjum. Þetta þýðir að Ísland hafnar í 2. sæti riðilsins með 21 stig og verður því á meðal þátttökuþjóða í úrslitakeppninni, sem eitt af fimm liðum með bestan árangur í 2. sæti í riðlakeppninni.

Úrslitakeppnin verður haldin í tveimur hlutum í tveimur löndum - í Ungverjalandi og Slóveníu. Riðlakeppnin fer fram dagana 24.-31. mars 2021 og 8-liða úrslit, undanúrslit og úrslitaleikurinn fara svo fram 31. maí - 6. júní. Dregið verður í riðla fyrir úrslitakeppnina 10. desember næstkomandi.

Heimild: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.