Fotbolti.net
20.11.20 - 15:40
Elvar Geir Magnússon

Kalvin Phillips klár í slaginn

Kalvin Phillips.

Kalvin Phillips.

Canon

Mynd: Getty Images

Argentínumaðurinn Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, hefur staðfest að Kalvin Phillips sé klár í slaginn og verði með gegn Arsenal á sunnudaginn.

Þá er það staðfest að Rodrigo sé einnig klár eftir að hafa jafnað sig af Covid-19 en Pablo Hernandez verður ekki með á sunnudag.

Diego Llorente og Jamie Shackleton eru einnig fjarri góðu gamni.
Bielsa segir að það sé mikilvægt að geta reitt sig á Phillips en hann hefur misst af síðustu leikjum vegna meiðsla.

„Phillips er leikmaður sem spilar venjulega. Það er mikilvægt að geta reitt sig á þá menn. Hann finnur sjálfur út hvað þarf að laga og leiðréttir það í leik sínum," segir Bielsa.

Leikur Leeds og Arsenal verður 16:30 á sunnudag. Arsenal er í ellefta sæti deildarinnar en Leeds í því fimmtánda.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.