20.11.26 - 14:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þegar Gaui Þórðar fékk símtal frá Sir Alex um miðja nótt

Brynjar Kristmundsson og Gaui Þórðar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sir Alex Ferguson.

Mynd: EPA

Guðjón Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Brynjar Kristmundsson og Gaui Þórðar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Þórðarson, einn besti fótboltaþjálfari Íslandssögunnar, lést á dögunum en hann var 71 árs gamall.
Í gær birti Fótbolti.net þar sem rætt var við þrjá fyrrum leikmenn Guðjóns og Brynjar Kristmundsson, fyrrum aðstoðarþjálfara hans hjá Víkingi Ólafsvík.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 19. nóvember á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Brynjar segist hafa lært gríðarlega mikið af Guðjóni og fékk að heyra margar góðar sögur frá honum þegar þeir störfuðu saman í Ólafsvík. Sögurnar voru margar og spönnuðu allan feril Guðjóns, allt frá tímanum á Skaganum til áranna hjá Stoke á Englandi. Brynjar segir að Guðjón hafi haft einstaklega gaman af því að rifja þær upp.
„Hann sagði mér sögur frá landsliðstímanum, Stoke og öllu því sem hann hafði gengið í gegnum. Þetta voru geðveikir tímar," sagði Brynjar.
Þegar Brynjar er spurður út í hversu góðar sögurnar hafi verið stendur ekki á svarinu. „Þær voru geðveikar."
„Hann sagði eina sögu af því þegar hann fékk símtal um miðja nótt. Hann svaraði símanum og var pirraður yfir því að einhver væri að vekja hann um miðja nótt. Hann spurði: „Hver er þetta?“
„Þá var svarið: „Þetta er Alex.“
„Hann svaraði þá eitthvað á þessa leið: „Alex? Sir Alex?“
„Þá áttaði hann sig á því að Sir Alex Ferguson væri að hringja í hann. Það var víst verið að reyna að fá markmanninn frá honum eða eitthvað í þeim dúr. Þá náttúrulega rauk hann á fætur. Þetta er góð saga.“

TENGT EFNI
Enginn eins og Guðjón Þórðarson - „Hann var þjálfarinn minn númer eitt, tvö og þrjú"

Sir Alex Ferguson.

Mynd: EPA

Guðjón Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur