Fotbolti.net
20.11.26 - 12:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Víkingur greiðir HK sjö milljónir og upphæðin getur hækkað

Víkingur greiðir HK sjö milljónir og upphæðin getur hækkað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eins og greint var frá fyrr í dag er Víkingur að kaupa Ólaf Örn Ásgeirsson frá HK. Svo gott sem allt við félagaskiptin er frágengið, en enn á eftir að skrifa undir. Eftir kaupin verður Ólafur hins vegar áfram hjá HK, á láni frá Víkingi út næsta tímabil.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net greiða Íslandsmeistararnir sjö milljónir króna fyrir Ólaf og getur sú upphæð hækkað út frá árangurstengdum greiðslum.
Víkingur að kaupa Óla Neuer - Lánaður til baka
TENGT EFNI

Víkingur að kaupa Óla Neuer - Lánaður til baka

Það verður næst hæsta sala í sögu HK en hæsta upphæðin sem HK hefur fengið fyrir leikmann er þegar Víkingur keypti Atla Þór Jónasson eftir tímabilið 2024 á um 11 milljónir króna.

Ólafur Örn er fæddur 2003 og hefur verið aðalmarkvörður HK síðustu tvö tímabil. Hann hefur fengið viðurnefnið Óli Neuer þar sem hann þykir svipa til Þjóðverjans Manuel Neuer sem var um árabil einn allra besti markvörður heims.
Víkingur greiðir HK sjö milljónir og upphæðin getur hækkað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.