Fotbolti.net
19.11.26 - 14:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Haukar reikna með því að fá boð um sæti í Bestu

Haukar reikna með því að fá boð um sæti í Bestu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Í dag gáfu Grindavík og Njarðvík út sameiginlega yfirlýsingu þess efnis að félögin hefðu slitið samstarfi kvennamegin.

Grindavík ætlar að vera með lið í 2. deild á næsta tímabili en óvíst er hvað Njarðvík mun gera og samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður fundað um helgina og ákvörðun væntanleg eftir helgi.

Njarðvík er áfram með keppnisrétt í efstu deild en er ekki með neina íslenska leikmenn á meistaraflokksaldri. Rætt hefur verið við Keflavík og möguleiki á því að félögin fari í samstarf, en það lið yrði þó í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Ekki er útilokað að Njarðvík fari í samstarf við annað félag.
Samstarfi Grindavíkur og Njarðvíkur slitið - Haukar upp í efstu deild?
TENGT EFNI

Samstarfi Grindavíkur og Njarðvíkur slitið - Haukar upp í efstu deild?

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net reikna Haukar, sem enduðu í 3. sæti Lengjudeildarinnar, við því að fá boð um sæti í Bestu deildinni og í kjölfarið yrði tekin ákvörðun um hvort félagið þyggi það boð. Það yrði þó ekki af því boði ef Njarðvík ákveður að spila áfram í Bestu deildinni.

Aukin kostnaður felst í því að vera með lið í Bestu deildinni og það yrði að meta stöðuna.
Haukar reikna með því að fá boð um sæti í Bestu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.