Fotbolti.net
20.11.26 - 11:30
Mate Dalmay

Skoraðu á leikmenn úr Bestu í FC27 á Íslandsmeistaramóti Red Bull Wings Cup

Hjörvar og Nablinn verða á staðnum.

Hjörvar og Nablinn verða á staðnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á Smáratorgi á morgun, inni á gamla Arena Gaming (Smáratorg 3), fer fram Íslandsmeistaramót Red Bull Wings Cup. Þar mætast átta bestu spilarar landsins í FC27, en þeir hafa unnið sér þátttökurétt á mótinu.

Þeir keppa um Íslandsmeistaratitilinn og þátttökurétt á heimsleikunum í Miami.

Mótið hefst klukkan 18:00 og er áætlað að því ljúki um klukkan 20:30.

Hjörvar Hafliða og Nablinn stýra dagskránni og verða einnig með pubquiz þar sem í boði verða veglegir vinningar.
Lestu meira um mótið hér

Einnig verður hægt að skora á leikmenn Bestu deildarinnar í FC27 á staðnum, en þeir Helgi Guðjónsson, Atli Þór Jónasson, Jökull Andrésson og Fred verða á tveimur tölvum.

Það eru verðlaun frá Red Bull og treyjur frá Boltamanninum í boði fyrir þá sem vinna leikmennina í tölvuleiknum.

Sigurvegari Íslandsmótsins verður fulltrúi Íslands á heimsleikunum í Miami í janúar 2027.

Hvað er Wings Cup?
Red Bull Wings Cup er keppni á heimsvísu í EA Sports FC27 þar sem 80 lönd taka þátt. Á Íslandi hafa hundruðir keppenda skráð sig til leiks og eftir standa topp átta á landinu, sem keppast um Wings Cup Íslandsmeistaratitilinn í gamla Arena Gaming á morgun, laugardag, kl. 18:00.
Getur þú unnið Íslandsmeistara í fótbolta í tölvuleik?

Getur þú unnið Íslandsmeistara í fótbolta í tölvuleik?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.