20.11.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Búast ekki við að missa Balde í janúarglugganum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikið hefur verið rætt um áhuga Manchester United og fleiri félaga á spænska bakverðinum Alejandro Balde sem er að fá lítinn spiltíma undir stjórn Hansi Flick hjá Spánarmeisturum Barcelona.

TENGT EFNI
PSG og Juventus eru með í baráttunni um Balde
Balde, sem er 23 ára, hefur aðeins komið við sögu í fimm leikjum á tímabilinu og aldrei verið í byrjunarliðinu. Þrátt fyrir það búast stjórnendurnir Deco og Bojan, sem léku á sínum tíma báðir fyrir Barcelona, ekki við að missa Balde í janúarglugganum. Balde er aðeins með eitt og hálft ár eftir af samningi.
„Við viljum ekki selja Balde í janúar. Hann er ekki að fá mikinn spiltíma og það getur verið erfitt, við skiljum það. En tímabilið er langt og hann mun fá sín tækifæri. Hann hefur verið að æfa mjög vel," sagði Bojan á meðan Deco sagði bara 'nei' þegar hann var spurður hvort það væri mögulegt að Balde yrði seldur í vetur.
Deco svaraði fleiri spurningum og var meðal annars spurður út í þrjá leikmenn sem Börsungum mistókst að klófesta á síðustu árum, auk þess að ræða um framtíð Ronald Araújo sem er á láni hjá Liverpool. Deco sagðist sjá mest eftir Luis Díaz sem Barca reyndi að kaupa frá Liverpool áður en hann skipti til FC Bayern, meira heldur en hann sæi eftir því að hafa mistekist að næla í Bernardo Silva og Julián Alvarez.
„Ronald Araújo er góður fótboltamaður og mikill leiðtogi, við virðum hans ákvörðun að vilja breyta til. Það sem skiptir mestu máli er að hann sé hamingjusamur og ef hann ákveður að vera áfram í Liverpool þá erum við ánægðir fyrir hans hönd. Smá peningur í kassann myndi heldur ekki koma sér illa," sagði Deco.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 12 | +35 | 33 |
| 2 | Real Madrid | 12 | +21 | 30 |
| 3 | Atletico Madrid | 12 | +13 | 28 |
| 4 | Betis | 12 | +5 | 26 |
| 5 | Real Sociedad | 12 | +1 | 22 |
| 6 | Sevilla | 12 | -2 | 18 |
| 7 | Athletic | 11 | +4 | 16 |
| 8 | Villarreal | 12 | +2 | 15 |
| 9 | Deportivo | 12 | +1 | 15 |
| 10 | Racing Santander | 12 | -13 | 14 |
| 11 | Celta | 12 | 0 | 13 |
| 12 | Alaves | 12 | -2 | 13 |
| 13 | Espanyol | 12 | -1 | 12 |
| 14 | Vallecano | 11 | -6 | 12 |
| 15 | Getafe | 12 | -10 | 12 |
| 16 | Osasuna | 12 | -11 | 12 |
| 17 | Levante | 12 | -5 | 11 |
| 18 | Elche | 12 | -6 | 10 |
| 19 | Valencia | 12 | -12 | 9 |
| 20 | Malaga | 12 | -14 | 5 |