20.11.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Verða ekki áfram hjá Val

Markus Nakkim

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Myles Veldman

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markus Nakkim

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Markus Nakkim og Myles Veldman verða ekki áfram hjá Val en samningar þeirra við félagið renna út í lok árs.
Þetta staðfestir Halldór Árnason, þjálfari Vals, í samtali við Fótbolta.net í gær.
„Bæði Myles og Markus eru góðir leikmenn sem lögðu sig alla fram fyrir félagið og spiluðu á köflum virkilega vel. En eins og þú bendir á þá eru samningarnir þeirra runnir út og bæði ég og allir í Val óskum þeim alls hins besta í þeirra næsta verkefni," sagði þjálfarinn m.a. í lengra viðtali í gær.

TENGT EFNI
Dóri Árna: Getum gert hann betri og hann okkur að betra liði
Markus Nakkim er norskur miðvörður sem om Í Val fyrir tímabilið 2025. Hann er þrítugur og lék á sínum tíma með U21 landsliði Norðmanna. Nakkim byrjaði 15 leiki í sumar en meiðsli settu strik í reikninginn. Hann skoraði tvö mörk, bæði í útisigri á Þór í júní. Á síðasta tímabili hjálpaði hann Val að enda í 2. sæti Bestu deildarinnar og komast í bikarúrslit. Nakkim hefur verið orðaður við ÍA.
Veldman er 23 ára vinstri bakvörður sem kom til Vals frá Litháen síðasta vetur. Hollendingurinn hafði farið til Litháen frá heimalandinu því félög í stærri deildum hefðu þurft að greiða uppeldisbætur fyrir hann.
Veldman skoraði þrjú mörk og lagði upp eitt í 19 byrjunarliðsleikjum. Hann kom þá fimm sinnum inn á sem varamaður. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefði bakvörðurinn áhuga á því að spila áfram á Íslandi.