Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 21. janúar 2021 17:36
Ívan Guðjón Baldursson
Davíð Snorri nýr aðalþjálfari hjá U21 (Staðfest)
Mynd: Hulda Margrét
KSÍ hefur staðfest ráðningu Davíðs Snorra Jónassonar í starf aðalþjálfara U21 landsliðs karla.

Davíð Snorri tekur við af Arnari Þór Viðarssyni sem er í dag yfirmaður knattspyrnumála hjá Knattspyrnusambandinu.

Davíð Snorri fer því beint með U21 liðið á EM 2021 í lok mars, þar sem Íslendingar eru í hörkuriðli með Frökkum, Dönum og Rússum.

Davíð Snorri þekkir vel til hjá landsliðinu og þjálfaði strákana í U17 liðinu með góðum árangri í þrjú ár. Hann býr einnig yfir reynslu úr íslenska boltanum þar sem hann og Freyr Alexandersson komu Leikni R. upp í efstu deild karla í fyrsta sinn í sögunni haustið 2015.

„Ég er ánægður og stoltur yfir því að KSÍ hafi leitað til mín til að þjálfa U21 árs lið Íslands. Verkefnið núna er tvíþætt. Annars vegar að vera klárir fyrir lokakeppnina og einnig byrja undirbúning fyrir næstu undankeppni, sem byrjar í haust," sagði Davíð Snorri í samtali við KSÍ.

„Þetta er frábært verkefni og það er skemmtileg vinna framundan sem ég hlakka til að takast á við. Það er mikil eftirvænting hjá öllum sem koma að liðinu að fara í keppnina. Þetta er stórt svið sem öllum langar að sýna sitt besta á og ná árangri. Liðið hefur sýnt góðar frammistöður og sterkt hugarfar sem hefur skilað því inn í lokakeppnina. Við munum halda áfram að tryggja faglegt umhverfi og vera bestir í að undirbúa okkur svo allir njóti sín þegar í leikinn er komið.“

Tilkynnt verður um aðstoðarþjálfara fljótlega.
Athugasemdir
banner
banner
banner