Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. janúar 2021 11:13
Magnús Már Einarsson
KA fær belgískan miðjumann (Staðfest)
Sebastiaan Brebels
Sebastiaan Brebels
Mynd: KA
KA hefur fengið belgíska miðjumanninn Sebastiaan Brebels til liðs við sig frá belgíska félaginu Lommel.

Sebastiaan er 25 ára gamall en hann hefur spilað þrettán leiki með Lommel í belgísku B-deildinni í ár.

„Sebastiaan hefur staðið sig vel og leikið alla leikina fyrir Lommel á núverandi keppnistímabili þar sem hann hefur skorað 3 mörk í 14 leikjum en samtals hefur Sebastiaan leikið 105 leiki fyrir Lommel og skorað í þeim 9 mörk," segir á heimasíðu KA.

„KA hefur náð samkomulagi við Lommel og er Sebastiaan væntanlegur til landsins á næstu dögum. Það verður gaman að sjá þennan öfluga leikmann í KA-búningnum á komandi tímabili og bjóðum við hann velkominn norður."

Hjá Lommel hefur hann meðal annars spilað með Kolbeini Þórðarsyni og Jonathan Hendrickx, fyrrum bakverði Breiðablik og FH. Hendrickx hefur að undanförnu verið orðaður við KA og fleiri félög á Íslandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner