lau 21. janúar 2023 12:20
Aksentije Milisic
„Newcastle getur unnið deildina í ár”
Mynd: EPA

Patrick Vieira, stjóri Crystal Palace, segir að Newcastle geti unnið ensku úrvalsdeildina á þessu tímabili en liðið er sem stendur níu stigum á eftir toppliði Arsenal.


Newcastle heimsækir Crystal Palace í dag en Vieira og lærisveinar hans eru að leita að fyrsta sigrinum á heimavelli síðan seint í október mánuði.

Vieira vill ekki útiloka það að Newcastle geti unnið þann stóra á þessu tímabili.

„Miðað við hvernig Newcastle er að spila þá sé ég enga ástæðu til þess afhverju liðið ætti ekki að hafa trú á því að það geti barist um þetta, ásamt nokkrum öðrum liðum,” sagði Vieira.

„Newcastle er líkamlega sterkt lið og spilar af miklum ákafa. Það er mikilvægt að við mætum þeim að sama krafti. Þeir eru mjög góðir varnarlega en við höfum verið að skapa góð færi undanfarið.”

Leikurinn hefst klukkan 17:30 á Selhurst Park.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner