Draumamark hjá Stach
Nýliðar Burnley gerðu 1-1 jafntefli við heims- og Sambandsdeildarmeistara Chelsea í 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Stamford Bridge í dag á meðan Brighton fagnaði leikjameti James Milner með 2-0 sigri á Brentford í Lundúnum.
Eina mark Chelsea kom á 4. mínútu. Moises Caicedo átti gersamlega ruglaða sendingu út á vinstri kantinn á Pedro Neto sem kom með fasta fyrirgjöf meðfram grasinu og á nafna sinn Joao Pedro sem tæklaði boltann í netið.
Burnley-menn voru inn í leiknum en náðu ekki að koma marki á Chelsea fyrir lok hálfleiksins.
Chelsea var líklegra til að bæta við þegar leið á síðari hálfleikinn, en seinna gula spjald Wesley Fofana á 72. mínútu eftir illa tímasetta tæklingu gaf Burnley von.
Það fór um heimamenn á lokamínútunum. Burnley setti pressu og voru föstu leikatriði James Ward-Prowse að ógna, en jöfnunarmarkið kom einmitt eftir eitt slíkt.
Hann tók hornspyrnu inn á teiginn á Zian Flemming sem stangaði boltann í netið í uppbótartíma. Burnley var ekki hætt og reyndi að kreista fram sigurmark, en hafði ekki erindi sem erfiði.
Gestirnir taka þó stigið á meðan þetta gæti reynst dýrkeypt fyrir Chelsea þegar talið verður upp úr pokanum í lok tímabils. Chelsea er í 4. sæti með 45 stig á meðan Burnley er í næst neðsta sæti með 19 stig.
Brighton fagnaði 2-0 sigri á Brentford í leik sem fer í sögubækurnar í ensku úrvalsdeildinni.
James Milner var í byrjunarliði Brighton og bætti þar um leið leikjamet Gareth Barry í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var 654. deildarleikur Milner.
Diego Gomez og Danny Welbeck sáu til þess að gera daginn eftirminnilegan með tveimur mörkum á síðustu fimmtán mínútum fyrri hálfleiks.
Níunda mark Welbeck í deildinni en sigurinn fleytti Brighton upp í 12. sæti með 34 stig á meðan Brentford er í 7. sæti með 40 stig.
Hákon Rafn Valdimarsson sat allan tímann á varamannabekk Brentford.
Tammy Abraham bjargaði stigi fyrir Aston Villa í 1-1 jafntefli gegn Leeds á Villa Park.
Anton Stach skoraði mark umferðarinnar með þrumuskoti úr aukaspyrnu á 31. mínútu. Emiliano Martínez, markvörður Villa, var að búast við því að Stach myndi koma boltanum inn á teiginn, en í staðinn skaut hann föstu skoti efst í vinstra hornið. Óverjandi fyrir Martínez.
Abraham kom inn af bekknum hjá Villa í seinni hálfleik og jafnaði metin tæpum stundarfjórðungi síðar. Þetta var annar leikurinn í röð sem hann skorar fyrir Villa, en hann kom til félagsins frá Besiktas undir lok vetrargluggans.
Aston Villa er áfram í 3. sæti með 51 stig en Leeds í 15. sæti með 31 stig.
Brentford 0 - 2 Brighton
0-1 Diego Gomez ('30 )
0-2 Danny Welbeck ('45 )
Aston Villa 1 - 1 Leeds
0-1 Anton Stach ('31 )
1-1 Tammy Abraham ('88 )
Chelsea 1 - 1 Burnley
1-0 Joao Pedro ('4 )
1-1 Zian Flemming ('90 )
Rautt spjald: Wesley Fofana, Chelsea ('72)
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 32 | 21 | 7 | 4 | 62 | 24 | +38 | 70 |
| 2 | Man City | 31 | 19 | 7 | 5 | 63 | 28 | +35 | 64 |
| 3 | Man Utd | 33 | 16 | 10 | 7 | 58 | 45 | +13 | 58 |
| 4 | Aston Villa | 32 | 16 | 7 | 9 | 43 | 38 | +5 | 55 |
| 5 | Liverpool | 32 | 15 | 7 | 10 | 52 | 42 | +10 | 52 |
| 6 | Chelsea | 33 | 13 | 9 | 11 | 53 | 42 | +11 | 48 |
| 7 | Brentford | 33 | 13 | 9 | 11 | 48 | 44 | +4 | 48 |
| 8 | Bournemouth | 33 | 11 | 15 | 7 | 50 | 50 | 0 | 48 |
| 9 | Brighton | 33 | 12 | 11 | 10 | 45 | 39 | +6 | 47 |
| 10 | Everton | 32 | 13 | 8 | 11 | 39 | 37 | +2 | 47 |
| 11 | Sunderland | 32 | 12 | 10 | 10 | 33 | 36 | -3 | 46 |
| 12 | Fulham | 33 | 13 | 6 | 14 | 43 | 46 | -3 | 45 |
| 13 | Crystal Palace | 31 | 11 | 9 | 11 | 35 | 36 | -1 | 42 |
| 14 | Newcastle | 33 | 12 | 6 | 15 | 46 | 49 | -3 | 42 |
| 15 | Leeds | 33 | 9 | 12 | 12 | 42 | 49 | -7 | 39 |
| 16 | Nott. Forest | 32 | 8 | 9 | 15 | 32 | 44 | -12 | 33 |
| 17 | West Ham | 32 | 8 | 8 | 16 | 40 | 57 | -17 | 32 |
| 18 | Tottenham | 33 | 7 | 10 | 16 | 42 | 53 | -11 | 31 |
| 19 | Burnley | 32 | 4 | 8 | 20 | 33 | 63 | -30 | 20 |
| 20 | Wolves | 33 | 3 | 8 | 22 | 24 | 61 | -37 | 17 |



